Hrím 108 - Grímsnes - LandshúsHér eru myndir af glæsilegu Hrím 108 heilsárshúsi sem reist var reist í Grímsnesi haustið 2025.

Húsið er með tveimur hliðarbyggingum og er grunnflötur hússins því samtals um 137fm að stærð að utanmáli.  Húsið er reist á steypta plötu með gólfhita.

Húsið er klætt að utan með sérunnu lerki (iron sulfate) sem mun gefa húsinu fallegan og náttúrlegan gráan lit.  Gluggar og hurðir eru uppfærðir í ál/tré og er þakefni og þakkantur úr áli einnig.  Rennihurð er í miðju alrýminu.

Hliðarbyggingar hússins eru bæði sjálfstæð gestaherbergi með sérinngangi ásamt klósetti og sturtu.

Hér fyrir neðan er grunnplan fyrir húsið:

Hrím 108 - Grímsnes - Landshús

Hrím 108 – Grímsnes – Landshús

Landshús sá um uppsetningu hússins.  Húsið var reist og gert tilbúið að utan, að innan var það einangrað, rakasperra sett ásamt lagnagrind. Verkið gekk mjög vel og tók samtals um 5 vikur eftir að platan var tilbúin. Húsið var því tilbúið fyrir raf- og pípulögn að því loknu.

Húsið er virkilega fallegt og við óskum eiganda til hamingju með nýja húsið.