Húsin okkar og uppruni þeirra
Húsin okkar eru ölll alfarið hönnuð hér á landi út frá íslenskri byggingarlöggjöf. Ekki er um að ræða innflutning á erlendum lausnum sem upprunalega eru hönnuð fyrir aðra markaði.
Kröfur á Íslandi til húsbygginga eru alla jafna töluvert meiri en tíðkast erlendis og er það ekki að ástæðulausu, enda getur veðurfarið hér á landi verið krefjandi.
Við fórum því þá leið að hanna hús frá grunni, sem eru sérstaklega útfærð fyrir okkar harðgerðu aðstæður.
Húsin okkar standast því íslenska byggingarreglugerð að öllu leyti enda sérstaklega hönnuð fyrir okkar harðgerðu aðstæður af einni af okkar virtustu verkfræðistofu landsins, Eflu.
Allt efnisval er skv. íslenskum stöðlum og reglugerðum með tilheyrandi CE vottun skv. íslenskum lögum þar sem það á við.
Allir verkþættir eru skilgreindir af okkar hönnuðum og húsin alfarið smíðuð eftir þeim.
Húsin eru einnig hönnuð og smíðuð eftir þeim hefðum, aðferðum og bygggingarmenningu sem við þekkjum hér á landi sem að okkar mati er ekki síður mikilvægt – Í húsunum okkar ekkert kemur á óvart.
Nánar um uppbyggingu húsanna okkar
Húsin eru byggð úr timbri og eru í grunninn hefðbundin timburhús eins og við eigum að venjast hér á landi til áratuga, byggingar sem hafa góða reynslu við okkar krefjandi aðstæður. Það sem einkennir húsin okkar er einingakerfið okkar sem við hönnuðum í samstarfi við Eflu verkfræðistofu.
Einingakerfið okkar samanstendur af:
- a) forsmíðuðum einingum
- b) forsniðnu efni
Hugmyndafræðin
Hugmyndafræðin og hönnunin gengur út á að húsið sé fljótlegt í uppsetningu en við skiljum þó eftir verkþætti sem kaupandi gerir sjálfur á staðnum.
Með þessu erum við í raun að færa hluta vinnunnar í hendur kaupanda í stað þess að láta framkvæma hana í verksmiðjum okkar.
Það sem er áunnið með því er umtalsvert minni framleiðslu- og flutningskostnaður og gengur það beint til kaupanda í formi hagkvæms kaupverðs á húsinu.
Þeir verkþættir sem kaupandi sér um eru þó þannig útfærðir að búið er að auðvelda þá eins og kostur er með því að tilsníða nánast allt efni.
Einnig er ekki allt í pakkanum sem þarf til þess að klára húsið en það er með ráðum gert.
T.d. fer innra skipulag húsanna eftir notkun þeirra og því getur útfærsla húsanna verið mjög mismunandi. Húsin okkar eru sveigjanleg hvað það varðar og þvi geta allir útfært húsin okkar að eigin óskum. Einnig höfum við öll okkar smekk varðandi efnisval og því er allt val opið varðandi endanlega klæðningu, tæki og innréttingar.
Þar af leiðir að bæði af hagkvæmnisástæðum og til þess að húsin henti sem flestum tókum við þá ákvörðun að ganga ekki lengra með húsið en við gerum.
Fyrstu húsin með einingakerfinu okkar komu á markað árið 2016. Síðan þá hafa hús af ýmsum stærðum og gerðum risið um allt land með mjög góðum árangri.
Hugsjónin okkar
Þegar Landshús var stofnað, árið 2013, var það okkar markmið að koma með á markaðinn lausn fyrir þá sem hafa hug á því að reisa sér vandað og sterkbyggt hús á hagkvæman hátt. Eftir mikla hönnunarvinnu í samstarfi við Eflu verkfræðistofu varð okkar eigið einingakerfi til sem hefur frá fyrsta degi sannað gildi sitt, bæði hvað varðar hagkvæmni, styrk og gæði.
