Klettar 65 - Aðstöðuhús - LandshúsHér er á ferðinni áhugavert Klettar 65 hús.  Húsið er skráð 99,3 fm að stærð og er útfært sem staðlað Klettar 65 ásamt 10 stækkunum.  Húsið er staðsett á fallegum stað á Suðurlandi og kemur sem viðbót við annað hús sem fyrir er á staðnum og er af gerðinni Klettar 80.  Húsið er með lerkiklæðningu og eru gluggar og hurðir með ál/tré uppfærslu.  Stóra hurðin á suðurhliðinni er rennihurð.

Húsið er sett á steypta plötu og er hugsað sem aðstöðuhús/bílskúr með aflokaðri gestaálmu.

 

 

Klettar 65 - Aðstöðuhús - Landshús

Klettar 65 – Aðstöðuhús – Landshús

Landshús sá um uppsetningu hússins og gekk uppsetningin hratt og vel.  Við óskum eigendum til hamingju með glæsilegt hús sem verður skemmtileg viðbót við núverandi aðstöðu í sveitinni.