Jöklar Bílskúr

Nú bjóðum við Jöklahúsin útfærð sem bílskúr.  Fljótleg, hagkvæm og traust leið til þess að reisa bílskúrinn eða athafnahúsið sem marga vantar.
Hægt er að fá húsið í þremur útfærslum, með burst þaki (tvíhalla hefðbundnu þaki – Jöklar Burst), með “flötu” þaki (einhalla þaki – Jöklar Flat) og sem Jöklar – Íslensku húsin
Húsin afhendast ósamsett miðað við skilalýsinguna „Tilbúin að utan, fokheld að innan“
Íslensk hönnun fyrir íslenskar aðstæður – Húsin standast 100% íslenska byggingarreglugerð

 Grunnhús (24,3fm)
Verð: Sjá verðskrá

Stækkanlegt

Hægt er að stækka bílskúrinn að vild með því að bæta við einingum og bæta við hurðum og gluggum að vild og/eða færa til. Grunnhúsið er 24,3fm.  Hver stækkun lengir húsið um 60cm og stækkar það því um 2,77fm.

Bílskúrshurð

Bílskúrshurðin er ekki innifalin.  Landshús eru í samstarfi við Vagna og þjónustu en þeir geta útvegað hurð og ísetningu ef óskað er skv. tilboði.

Gólf

Húsin koma með gólfi en hægt er að sleppa gólfi ef húsið á að fara á steypta plötu.  Frádrag vegna gólfs er skv. tilboði hverju sinni.

Myndir

Hafðu samband

Sendu okkur línu á landshus@landshus.is ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt fá tilboð.