Jöklar Flat – (Einhalla Þak)

Jöklar með “flötu” þaki (einhalla þaki) er fyrsta útgáfa Jöklahúsanna sem Landshús kom fram með.  Húsið hefur fengið afar góðar viðtökur enda stílhreint hús sem hentar fullkomlega tilgangi sínum, þ.e. að vera þægilega stórt rými fyrir 2-4 manns.

Jöklar eru fyrst og fremst hugsaðir sem hentugur kostur fyrir þá sem vilja bjóða upp á gistingu fyrir ferðamenn eða sem gestahús/skrifstofa sem viðbót við aðalhús.

Stærð

Húsið er 4,62m að breidd og 5,26 að lengd (stækkanlegt á lengdina).

Rýmið er hugsað sem hentug stærð fyrir 2-4 dvalargesti á hverjum tíma.  Hægt er að útbúa húsið með eða án eldunaraðstöðu eftir áherslu rekstrar hverju sinni. Ef hús er stækkað er auðvelt að loka af svefnherbergi og gera ráð fyrir svefnsófa í aðalrými. Stöðluðu björgunaropi (opnanlegur gluggi af ákveðinni stærð skv. reglugerð) er þá bætt við.

 Grunnhús (24,3fm)
Verð: Sjá verðskrá

Stækkunarmöguleikar

Hægt er að stækka húsið að vild með því að bæta við einingum og bæta við hurðum og gluggum og/eða færa til. Grunnhúsið er 24,3fm.  Hver stækkun lengir húsið um 60cm og stækkar það því um 2,77fm. (sjá myndir neðar á síðunni)

Gluggar og hurðir – breytingar

Hægt er að breyta gluggum og hurðum og auka eða minnka gluggamagn.  Einnig er hægt að fá glugga eftir eigin málum og með öðruvísi útliti, t.d. franska glugga o.s.fr. Auka gluggaeiningar geta fylgt með.

Klæðning

Klæðning húsanna er úr bandsöguðu (ýfðu) greni.  Einnig er boðið upp á að uppfæra klæðningu í viðhaldsfría síberíska lerkiklæðningu.

Húsin afhendast ósamsett miðað við skilalýsinguna „Tilbúin að utan, fokheld að innan“

Íslensk hönnun fyrir íslenskar aðstæður

Húsin eru hönnuð á Íslandi út frá íslenskum stöðlum.  Efla verkfræðistofa á Akureyri hefur séð um alla tæknihönnun í öllum húsunum okkar út frá gildandi byggingareglugerð hér á landi.

Myndir

Myndirnar sýna mögulegar litaútfærslur húsanna ásamt stækkunarmöguleikum. Hér má svo sjá myndir af uppkomnum húsum vítt og breitt um Ísland.

Hafðu samband

Sendu okkur línu á landshus@landshus.is ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt fá tilboð.