Myndir af húsunum frá okkur víðsvegar af landinu

Fjallabyggð – Þjónustuhús á tjaldsvæði

Fjallabyggð – Þjónustuhús á tjaldsvæði

Jöklar - Þjónustuhús á tjaldsvæði - Reist í Fjallabyggð Hér eru myndir af Jöklahúsi sem reist var árið 2021.  Um er að ræða Jöklahús (Burst) með 3 stækkunum og gluggum og hurðum eins og óskað var eftir. Húsið þjónar þeim tilgangi að vera þjónustuhús fyrir...

Raðhús í Búðardal

Raðhús í Búðardal

Reitir - Raðhús - Reist í Búðardal 2023 Hér eru myndir sem teknar voru af raðhúsum frá okkur í Búðardal, sem reist voru árið 2023.  Um er að ræða verkefni í samstarfi við sveitarfélagið en Búðardalur er einn af mörgum byggðarkjörnum landsins þar sem skortur er á...

Tígull – Auka hús við sumarbústað

Tígull – Auka hús við sumarbústað

Hér er myndasería af Tígli. Húsið er með einni stækkun og nokkrum auka gluggum. Við húsið var settur pallur.  Húsið var reist á jarðvegsskrúfum.  Undirlagið var þýft og nánast hrein mold.  Því gekk vel að setja skrúfurnar niður þrátt fyrir að þær væru 1,6m að lengd. ...

Klettar 80 + 6 stækkanir – Suðurland

Klettar 80 + 6 stækkanir – Suðurland

Hér er Klettar 80 hús með 6 stækkunum, staðsett á fallegum stað á Suðurlandi.  Húsið er með lerkiklæðningu og eru gluggar og hurðir með ál/tré uppfærslu.  2 stækkanir voru settar í svefnherbergishluta hússins og 4 í stofu/eldhús.  Bíslagið var einnig lengt um 1,2m. ...

Jöklar – Raðhús á Suðurlandi

Jöklar – Raðhús á Suðurlandi

Hér eru 3 Jöklahús sett saman og mynda fallegt raðhús.  Húsið er staðsett í Suðurlandi og var í byggingu þegar okkur bar að garði sumarið 2022.  Við óskum eigendum til hamingju með verkefnið.

Klettar 80 í Hvalfjarðarsveit

Klettar 80 í Hvalfjarðarsveit

Hér ber að líta stórglæsilegt Klettahús í Hvalfjarðarsveit.  Húsið er af gerðinni Klettar 80 með tveimur stækkunum að framan og tveimur að aftan ásamt bíslagi.  Húsið er með lerkiklæðningu og eru gluggar og hurðir með ál/tré uppfærslu.  Þetta hús er því...

Íslenskt hús undir Eyjafjöllum

Íslenskt hús undir Eyjafjöllum

Jöklar - Íslenskt húsHér eru fyrstu myndirnar af húsi sem verið að reisa undir Eyjafjöllum.  Um er að ræða Jöklahús - Íslensku húsin.  Húsið er með tveimur stækkunum og er því um 30fm að grunnfleti.  Klæðningin er lerki.  Kaupandi gerði þá breytingu á...

Klettar 65 í Hvalfirði

Klettar 65 í Hvalfirði

Klettar 65 í HvalfirðiMyndirnar hér fyrir neðan sýna hús sem reist var núna í sumar (2019) í Hvalfirði.  Uppsetning gekk afar vel og útkoman er glæsileg.  Um er að ræða Kletta 65 + 2 x stækkun, þ.e. ein stækkun í alrými og ein stækkun í herbergisálmu -...

Bílskúr á Suðurlandi

Bílskúr á Suðurlandi

Bílskúr sem reistur var á Suðurlandi 2018 og er árangurinn virkilega góður. Kaupendur gerðu nokkrar breytingar á húsinu sem snúa að gluggafyrirkomulagi enda er húsið notað að hluta sem vélageymsla og að hluta sem vinnustofa.

Myndir af Jöklum – íslensku húsunum í Borgarfirði

Myndir af Jöklum – íslensku húsunum í Borgarfirði

Hér eru skemmtilegar myndir af Jöklum – Íslensku húsunum – sem rísa nú í Borgarfirði (haust 2018). Húsin koma vel út í íslenskri náttúru og ekki laust við að þau myndi tíðaranda eins og hann var í íslenskum sveitum hér áður fyrr.

Klettahús á Austfjörðum

Klettahús á Austfjörðum

Eitt af fyrstu Klettahúsunum sem verið er að reisa um þessar mundir er statt á Austfjörðum í námunda við Egilsstaði. Verkið hefur gengið vel og byggjendur og eigendur eru afar glaðir með framvindu.

Starfsmannahús á Suðurlandi

Starfsmannahús á Suðurlandi

Hér eru 4 hús sem reist voru fyrir starfsfólk í ferðatengdri þjónustu. Húsin eru öll eins og er hvert þeirra af gerðinni Jöklar – Burst með 4 fjórum stækkunum.