Upplifun á Íslandi

Hægt er að bæta við einingum...

Sýningarhús

Jöklar – Sýningarhúsið okkar hefur verið reist á Garðatorgi í Garðabæ.

Allir velkomnir!

Síðasta haustpöntun 2017!

  • Ef þú vilt fá hús fyrir veturinn þá eru núna síðustu förvöð að panta

Næsta haustafhending er 30.október

 – Opið fyrir pantanir fram til 15. ágúst

Jöklar á Booking.com

Glæsileg Jöklahús komin í útleigu!

Laxhús á Laxamýri – Norðurland

bookingcom

Við óskum Jóni og Sólveigu innilega til hamingju með nýju Jöklahúsin.

Hér er hægt að bóka gistingu í þau

 

Splunkunýtt!  Jöklar – Sumarhús – Burst (54fm)

Splunkunýtt úr hönnunarsmiðju okkar – Jöklar – Sumarhús með burst þaki!  Verð kr. 5.295.000,- m/vsk

Hér er á ferðinni splunkuný hönnun sem sýnir hvernig meðalstórt sumarhús – samtals 54 fm –  er útbúið úr Jöklahúsunum og nú með tvíhalla þaki (Burst þaki).

Stækkanlegt: Hægt er að stækka húsið og bæta við hurðum og gluggum að vild og/eða færa til.

Húsin afhendast ósamsett miðað við skilalýsinguna „Tilbúin að utan, fokheld að innan“

Íslensk hönnun fyrir íslenskar aðstæðurHúsin standast 100% íslenska byggingareglugerð

 

Nýtt!  Jöklar – Starfsmannahús

Jöklar henta afar vel sem starfsmannahús.  Rýmið er hægt að skipuleggja að vild, bæði m.t.t. stærðar og fjölda herbergja ásamt fyrirkomulagi.

Gluggum og hurðum er hægt að breyta, fækka og fjölga.  Auðvelt er að aðlaga húsin að þörfum hvers og eins (t.d. hjónaherbergi eða einstakingsherbergi) því hvert hús er stækkanlegt.  Húsin raðast auðveldlega saman og því auðvelt að mynda raðhús / herbergjaálmu.

Hægt er að fá starfsmannahúsin með burst þaki eða einhalla þaki.

Tveggja herbergja húsið með sérinngangi inn í hvort herbergið sem sýnt er hér til hliðar er 30 fm og kostar kr. 3.298.800,- m/vsk.

 

 

Nýtt!  Jöklar – Burst

Við kynnum til sögunnar Jöklahús með tvíhalla þaki, eða “burst þaki” .  Húsin eru að öllu leiti eins og Jöklahúsin hafa verið gerð hingað til fyrir utan uppbyggingu þaksins.  Grunnflötur hússins er 24,3 fm.

Hægt er að stækka húsið að vild og bæta við gluggum og hurðum ef óskað er, bæði stöðluðum gluggum og eftir séróskum.

Verð á Jöklum – Burst er kr. 2.490.000,- m/vsk.

Við bjóðum húsið nú á sérstöku kynningarverði kr. 2.190.000,-

 

Nýtt!  Jöklar – Sumarhús

Glænýtt úr hönnunarsmiðju okkar – Jöklar – Sumarhús!  Verð kr. 4.695.000,- m/vsk

Hér er á ferðinni splunkuný hönnun sem sýnir hvernig meðalstórt sumarhús – samtals 54 fm –  er útbúið úr Jöklahúsunum.

Hægt er að gera enn frekari breytingar á húsinu, s.s. stækka báða hluta þess og bæta við hurðum og gluggum.

Smelltu HÉR til að hlaða niður teikningum af húsinu.

0

 

 

 

Nýtt!  Jöklar – Parhús

Jöklahúsin er vel hægt að útfæra í ýmsum útfærslum og eru Jöklar – Parhús dæmi um það.  Hægt er að raða húsunum upp á ýmsan hátt, láta þau stallast eða vera í beinni línu, spegla gluggum o.s.fr.

Nýtt!  Jöklar – Hótel

Jöklar – Hótel er afar heppileg lausn fyrir þá sem vilja bæta við sig gistiálmu, annað hvort við núverandi rekstur eða sem sjálfstæða einingu.  Stærð herbergja er breytileg og fjöldinn er ótakmarkaður.

Hvert hús er sjálfstætt og því auðvelt að “leysa upp” bygginguna á síðari stigum breytist aðstæður eða áherslur rekstrar.

Hótelið er fljótlegt í uppbyggingu og hagkvæmt í innkaupum.

Verðskrá:

Tilboðsverð á stöku Jöklahúsi (24,3 fm) frá kr. 1.990.000,-

Verð á einni stækkun (2,77 fm) frá kr. 239.000,-

Húsin afhendast ósamsett miðað við skilalýsinguna: ,,Tilbúin að utan, fokheld að innan”

(smelltu hér til að sjá kostnaðaráætlun að húsi tilbúnu til innréttinga)

Samsetning – Myndband

Sýningarhús okkar hefur verið reist á Garðatorgi í Garðabæ. Verið velkomin.

Á myndbandinu hér til hliðar má sjá samsetningu þess frá byrjun til enda.

Jöklar

Jöklar eru forsniðin einingahús úr timbri. Húsin eru hönnuð af íslenskum aðilum sem hentugur kostur fyrir þá sem reka ferðaþjónustu hér á landi.

Húsin eru byggð út frá nýju einingakerfi sem býður upp á ýmsa breytingamöguleika ásamt því að vera fljótleg og hagkvæm í uppsetningu.

Húsin eru hugsuð sem gestahús, með eða án eldunaraðstöðu en einnig er einfalt að útbúa stærri hús, s.s. sumarhús eða heilsárs íbúðarhús.

Hönnun húsanna

Húsin eru hönnuð með það að leiðarljósi að þau séu opin og björt og hleypi nærumhverfi og útsýni inn í rýmið og auki þar með enn frekar ánægjulega upplifun á Íslandi.

Hönnunin er í senn einföld og stílhrein og útfærð þannig að kostnaður fari ekki fram úr hófi, bæði á húsunum sjálfum og vinnu við uppsetningu.

Húsin eru hönnuð fyrir íslenskar aðstæður og uppfylla alla gæða – og byggingastaðla sem krafa er gerð um hér á landi.

Breytingamöguleikar

Einingakerfið býður upp á að gera breytingar á húsunum með einföldum hætti. Hægt er að lengja húsin, spegla þeim eða bæta við gluggum og hurðum.

 

Uppröðun

Húsin geta staðið ein og sér eða verið sett saman í lengju allt eftir því hvað hentar staðháttum og áherslu rekstrar hverju sinni.

 

 

Sýningarhús á Garðatorgi í Garðabæ – bókaðu skoðun!

Jöklar – Sýningarhúsið okkar hefur verið reist á Garðatorgi í Garðabæ. Um er að ræða 24,3 fm Grunnhús Jökla.  Áhugasömum er bent á að bóka tíma í skoðun í s. 553-1550.

Allir velkomnir!

Skoða nánar

Viltu vita meira?