Fossar – Einbýlishús

– Byggðu hagkvæmt

Fossar – einbýlishús eru útfærð í Einingakerfi Landshúsa. Einingakerfið okkar hefur undanfarin ár fengið afar góðar viðtökur og hafa húsin okkar risið um allt land með góðum árangri. Kerfið er að hluta til forsmíðaðar einingar og að hluta til forsniðið efni.

Markmið okkar er að bjóða upp á lausn sem gerir fólki kleift
að byggja traust hús á einfaldan og hagkvæman hátt.

EFLA verkfræðistofa á Akureyri sá um tæknilega hönnun á öllum húsunum okkar. Öll hönnun á burðarvirki, festingum og allt efnisval er skv. gildandi byggingarlöggjöf. Húsin uppfylla íslenska byggingarreglugerð allstaðar á landinu.

Kerfið er einfalt og uppsetningartími er stuttur.  Breytingarmöguleikar eru þó nokkrir og því er auðvelt að útfæra húsið eins og hver óskar.

Byggingarlýsing:

  • Húsin eru hönnuð á steypta plötu sem kaupandi útvegar
  • Útveggjagrind er úr 45mm x 145mm timbur (Styrkleikaflokkur C24), klædd með 12mm grenikrossvið
  • Utanhússklæðning er standandi bandsagað (18mm) greni sem lagt er á tvöfalt legtukerfi (21mm + 25mm)
  • Þaksperrur:
    1. Yfir stofu og eldhúsi: 45mm x 248mm (loft tekið upp – C24)
    2. Yfir svefnálmu: Kraftsperrur (loft tekið niður – C24)
  • Þakklæðning er 21mm nótuð greniborð
  • Þakefni er litað stál, upptekið á legtur með Siga þakdúk í undirlag
  • Rennur, flasningar og vatnsbretti er litað stál
  • Hurðir og gluggar er úr timbri með tvöföldu gleri og kemur málað og glerjað, tilbúið til ísetningar. Læsingar eru frá Assa. Gólfsíðir gluggar eru með öryggisgleri.
Myndin að ofan sýnir möguleikana á því hvernig hægt er að stækka ákveðna húshluta.
Valmöguleikar – hægt er að:

  • Breyta stærð húss:
    1. Stækka stofu og eldhús
    2. Stækka svefnálmu, fjölga herbergjum eða stækka
    3. Stækka bílskúr
  • Hafa hús með eða án bílskúr (einfaldur eða tvöfaldur)
  • Fjölga, fækka eða breyta gluggum og hurðum
  • Uppfæra glugga og hurðir í ál/tré
  • Uppfæra utanhúsklæðningu í viðhaldsfría lerkiklæðningu
  • Sleppa timburklæðningu sé óskað eftir annarri klæðningu, s.s. bárujárni eða áli.
  • Bæta við gólfgrind (Tilsniðin 8″ grind með músaneti+krossvið í botni og 21mm greniborðum eða rakavörðum spónaplötum í gólfkæðningu)

FOSS 4 – Hús sem rís þessa dagana (sumarið 2020) á Hólmavík

Hér er skemmtileg myndasaga af húsinu og má í raun sjá allt ferlið á framkvæmdinni, allt frá því að lóðin var þakin snjó snemma í vor þar til húsið er risið.  Framkvæmdin hefur gengið vel og það styttist í að húsið verði fullbúið.  Framkæmdin hefur gengið vel og eftir að vora tók hefur veðrið leið við mannskapinn.  Það er gaman frá því að segja að þetta hús er fyrsta einbýlishúsið sem rís á Hólmavík í 4 ár.

Hér fyrir neðan er linkur inn á myndaalbúm frá húsbyggjendunum sem hafa gefið okkur góðfúslegt leyfi að deila til þeirra sem eru áhugasamir um framkvæmdina:

Myndir af húsbyggingunni FOSS 4 á Hólmavík

Hér til hliðar eru svo nokkrar valdar myndir fyrir þá sem vilja hlaupa hratt yfir sögu

Fossar – Staðlaðar útfærslur

Hér fyrir neðan má finna myndir og málsettar teikningar af stöðluðum útfærslum Fossa

 Foss 1

Stærð íbúðar: 102 fm
Verð: Sjá verðskrá

 Foss 2

Stærð íbúðar: 119 fm
Verð: Sjá verðskrá

 Foss 3

Stærð íbúðar: 145 fm
Verð: Sjá verðskrá

 

 

 Foss 4

Stærð íbúðar: 145 fm
Stærð bílskúrs: 35 fm
Samtals: 180 fm
Verð:  Sjá verðskrá

 Foss 5

Stærð íbúðar: 153 fm
Stærð bílskúrs: 58 fm
Samtals: 211 fm
Verð: Sjá verðskrá